„Svo ólíkt því sem við erum búin að vera að gera“ Dogme sem kennsluaðferð í tungumálanámi Ellen Mörk Björnsdóttir Október 2016 Lokaverkefni til M.Ed.-prófs Kennaradeild „Svo ólíkt því sem við erum búin að vera að gera“ Dogme sem kennsluaðferð í tungumálanámi Ellen Mörk Björnsdóttir Lokaverkefni til M.Ed-prófs í náms- og kennslufræði Leiðbeinandi: Samúel Lefever Kennaradeild Menntavísindasvið Háskóla Íslands Október 2016 3 „Svo ólíkt því sem við erum búin að vera að gera“: Dogme sem kennsluaðferð í tungumálanámi. Ritgerð þessi er 30 eininga lokaverkefni til M.Ed.-prófs í náms- og kennslufræði við kennaradeild, Menntavísindasviði Háskóla Íslands © 2016, Ellen Mörk Björnsdóttir Lokaverkefni má ekki afrita né dreifa rafrænt nema með leyfi höfundar. 4 Formáli Ritgerð þessi er meistaraverkefni mitt sem lagt er fram til fullnaðar M.Ed. prófi í Náms- og kennslufræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Um er að ræða starfendarannsókn sem metin er til 30 ECTS eininga. Í henni beini ég athygli minni að notkun á kennsluaðferð eða nálgun í tungumálakennslu sem kallast Dogme. Hugmyndin að rannsókninni kviknaði snemma árs 2014 og var ég með þetta ritgerðarefni í huga í heilt ár áður en eiginleg og markviss rannsóknarvinna hófst haustið 2015. Gagnasöfnun og vinnsla stóð yfir veturinn 2015-2016. Leiðbeinandi minn við verkefnið var Samúel Lefever, það var eiginlega enginn annar sem kom til greina í mínum huga eftir að efnið var ákveðið enda hafði það verið í tímum hjá honum sem ég fræddist um og kynnti mér Dogmekennslu. Samúel tók strax vel í að leiðbeina mér. Við áttum góða fundi, við hittumst einstaka sinnum en áttum þess á milli ágætis símafundi og vorum í tölvusamskiptum. Kann ég honum miklar og góðar þakkir fyrir það. Sérfræðingur þessa verkefnis var Hafþór Guðjónsson, honum þakka ég faglega gagnrýni og nytsamlegar athugasemdir. Samstarfsfólki þakka ég áhuga og hvatningu. Einnig er ég mjög þakklát nemendum mínum fyrir þátttöku þeirra. Án þeirra hefði þessi rannsókn ekki verið unnin. Þau hafa hvatt mig og stutt, leynt og ljóst, bæði með því að sýna verkefninu áhuga sem og að taka þátt og vera hreinskilin um hvað virkar vel og hvað ekki. Að lokum vil ég ekki síst þakka minni kæru fjölskyldu fyrir sýnda þolinmæði og stuðning þar sem hlutverk mitt sem eiginkona og móðir hefur þurft að víkja allrækilega fyrir hlutverki námsmanns og rannsakanda. Það stendur nú til bóta. Þetta lokaverkefni er samið af mér undirritaðri. Ég hef kynnt mér Vísindasiðareglur Háskóla Íslands. Ég hef gætt viðmiða um siðferði í rannsóknum og fyllstu ráðvendni í öflun og miðlun upplýsinga, og túlkun niðurstaðna. Ég vísa til alls efnis sem ég hef sótt til annarra eða fyrri eigin verka, hvort sem um er að ræða ábendingar, myndir, efni eða orðalag. Ég þakka öllum sem lagt hafa mér lið með einum eða öðrum hætti en ber sjálf ábyrgð á því sem missagt kann að vera. Þetta staðfesti ég með undirskrift minni. Reykjavík, 1.júlí 2016 Ellen Mörk Björnsdótiir 5 Ágrip Í verkefni þessu fjalla ég um starfendarannsókn sem ég gerði veturinn 2015-2016. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hvernig mér, sem tungumálakennara í grunnskóla, gengi að nota Dogmekennsluaðferðina með það að markmiði að styðja við notkun nemenda á enskri tungu í kennslustundum og um leið að ígrunda og þróa starf mitt sem enskukennari til betri vegar. Eftir tíu ár í sama starfi við sama skóla fannst mér ég ekki alltaf vera að kenna eins og ég átti að vera að kenna. Kennslustundir og kennsluáætlanir voru orðnar að nokkuð fastmótaðri rútínu og þessu vildi ég breyta. Ég hafði áhuga á að kennslan yrði síður kennslubókamiðuð og að nemendur hefðu tækifæri til að leggja meira til málanna í kennslustundum. Í Dogme tengjast umræðuefnin og munnleg verkefni þátttakendum sjálfum frekar en að um tilbúin tilvik og persónur sé að ræða. Þannig gefur það tækifæri á meiri dýpt í samræðum og getur stuðlað að dýpri og raunsannari skilningi meðal nemenda og kennara. Ég vildi því einnig athuga hvort það að nota Dogme sem kennsluaðferð reglulega gæti leitt til aukinna og betri samskipta í kennslustundum. Þar sem rannsóknin er starfendarannsókn er það ég sem er bæði rannsakandinn og viðfangsefnið. Helstu gögn mín voru skrif og ígrundanir í rannsóknardagbók en að auki studdist ég við hljóðupptökur úr kennslustundum, verkefni nemenda, könnun meðal nemenda um Dogmekennslu, rýnihópaviðtal við nemendur og ýmsa minnismiða. Helstu niðurstöður benda til að notkun Dogme virðist henta ágætlega til að þjálfa munnlega færni nemenda. Aðferðin hefur marga kosti, hún er nemendamiðuð og sveigjanleg og styður við margt af því sem aðalnámskrá grunnskóla boðar. Viðhorf nemenda gagnvart Dogme var mjög jákvætt, þeim þótti aðferðin bæði gagnleg og skemmtileg og auðveldara var að fá nemendur til að halda sig við notkun á markmálinu. Vísbendingar voru um að notkun Dogme bætti samskipti þar sem nemendur virtust kunna að meta þá þætti sem hún hafði í för með sér líkt og minni áherslu á notkun kennslubóka, aukin áhrif nemenda í kennslustundum, dýpri samskipti og minni stýringu kennara. Að auki hjálpaði starfendarannsóknin mér að bæta atriði í kennslunni sem ég var óánægð með. Notkun Dogme gaf tækifæri á að vinna í mörgum af þeim þáttum sem þurfti að huga að. Áhrifin á starf mitt sem kennara voru því jákvæð og sannfærðu mig um að það er hverjum kennara nauðsynlegt að skoða sjálfan sig og kennslu sína reglulega með heiðarlegum og gagnrýnum augum. 6 Abstract “Unlike anything we have done before” Using the Dogme approach in language teaching In this master’s thesis I present and discuss an action research I conducted from September 2015 to May 2016. The purpose was to find out how I, as an English teacher, could use the Dogme method to motivate my students to use English in my classes. At the same time I wanted to reflect on my work and develop and improve myself as a teacher. Having taught the same subject at the same school for ten years, my job had turned into a routine and sometimes I felt like I wasn’t doing my best any more. I felt I needed to change this. I wanted to become less dependent on the coursebook and pay more attention to what my students had to say. In Dogme it’s important that the content is relevant to the students, which provides a great opportunity for them to communicate their thoughts and feelings. I was interested in finding out if the use of Dogme on a regular basis could improve oral communication in my English classes. This was an action research where I was the researcher as well as the subject. The data collection consisted of a journal, voice recordings, students’ projects, focus group interviews, a survey among students and the researcher’s notes. The main findings suggest that the Dogme approach is conducive for practicing student’s oral skills. The approach is student centered and flexible. Students were positive about Dogme classes; they thought Dogme was both useful and fun and it made it easier to get students to use the target language. The findings also indicated that the use of Dogme improved teacher/student communication as students seemed to appreciate the impact it had on lessons, such as less emphasis on the coursebook, more student influence, more real communication and less teacher centered classes. Additionally, the action research helped me to improve some of the aspects I was unhappy with in my teaching. It provided me with the perfect opportunity to develop as a teacher. The influence it had on my work was positive and convinced me that it is necessary for every teacher to pause once in a while and reflect on his or her work. 7 Efnisyfirlit Formáli ..................................................................................................................... 5 Ágrip ......................................................................................................................... 6 Abstract .................................................................................................................... 7 Efnisyfirlit ................................................................................................................. 8 1 Inngangur ..........................................................................................................10 1.1 Bakgrunnur minn .................................................................................................. 10 1.2 Rannsóknarspurningar.......................................................................................... 12 1.3 Uppbygging ritgerðar ............................................................................................ 12 2 Fræði og rannsóknir...........................................................................................14 2.1 Aðalnámskrá grunnskóla 2013 ............................................................................. 14 2.2 Tungumálanám og kennsla erlendra tungumála .................................................. 15 2.2.1 Straumar og stefnur....................................................................................... 16 2.2.2 Færniþættirnir fjórir ...................................................................................... 22 2.2.3 Hlutverk kennara ........................................................................................... 28 2.2.4 Íslenskar rannsóknir....................................................................................... 29 2.2.5 Raunverulegt efni (e. authentic material) ..................................................... 30 2.2.6 Samskipti nemenda og kennara í skólastofu ................................................. 32 2.2.7 Fagleg þróun - að verða góður kennari ......................................................... 33 3 Dogme ..............................................................................................................35 3.1 Uppruni og einkenni ............................................................................................. 35 3.2 Notkun á Dogme - Þrjú dæmi um kennslustundir ................................................ 37 3.3 Gagnrýni ................................................................................................................ 38 3.4 Fyrstu kynni mín af Dogme ................................................................................... 40 4 Rannsóknaraðferð .............................................................................................42 4.1 Starfendarannsóknir ............................................................................................. 42 4.2 Framkvæmd og aðferðafræði ............................................................................... 43 4.3 Tilgangur og markmið ........................................................................................... 44 4.4 Þátttakendur og aðstæður ................................................................................... 45 4.5 Gögn og gagnaöflun .............................................................................................. 46 4.6 Greining og úrvinnsla gagna ................................................................................. 48 4.7 Takmarkanir rannsóknarinnar og siðferðileg álitamál ......................................... 49 8 5 Niðurstöður ...................................................................................................... 51 5.1 Það sem var og það sem er – kennslustund í ensku ............................................ 51 5.2 Að læra ensku og að nota ensku .......................................................................... 53 5.3 Námsefni .............................................................................................................. 57 5.4 Dogme – sjónarhorn nemenda ............................................................................ 59 5.4.1 Spurningakönnun .......................................................................................... 59 5.4.2 Rýnihópaviðtal .............................................................................................. 61 5.5 Einstök tilvik ......................................................................................................... 62 5.6 Samskipti .............................................................................................................. 64 6 Umræður .......................................................................................................... 69 6.1 Breytingar og samskipti ....................................................................................... 69 6.2 Starfsþróun og starfendarannsóknir .................................................................... 72 6.3 Dogme og notkun markmáls ................................................................................ 73 6.4 Samantekt og lærdómur ...................................................................................... 77 7 Lokaorð ............................................................................................................ 80 Heimildaskrá ........................................................................................................... 81 Viðauki A: Nemendakönnun .................................................................................... 85 Viðauki B: Bréf til foreldra ........................................................................................ 86 9 1 Inngangur Hér verður aðdragandi verkefnis reifaður og færð rök fyrir því hvers vegna þetta efni var valið. Greint er frá megintilgangi verkefnis og þeim rannsóknarspurningum sem því er ætlað að svara. Auk þess verður útskýrt hvernig ritgerð þessi er uppbyggð. 1.1 Bakgrunnur minn Allt frá því að ég hóf nám í kennslufræði hef ég hugsað mikið um það hvernig kennari ég vil vera og hver gildi mín í kennslu eru. Ég vissi það í raun strax þá, fyrir meira en 15 árum síðan, hvernig ég vildi vera og hvernig ég vildi ekki vera sem kennari. Það hefur aldrei þvælst fyrir mér. Hins vegar hef ég einungis nýlega farið að velta því meira fyrir mér hvernig kennari ég er og hvort það er samræmi á milli þess sem ég er að gera og þess sem ég vil gera og vera sem kennari. Fyrir nokkrum árum má segja að ég hafi vaknað upp við þá staðreynd að kennslan var að mörgu leyti orðin tilbreytingarlaus vani sem mér leiddist og nemendum mínum leiddist sömuleiðis. Samt þótti mér vænt um starfið mitt og var sannfærð um að ég gæti verið góður kennari. En slíkt gerist bara ekki af sjálfu sér. Ég vissi að ég myndi líklega halda áfram að kenna næstu árin, bæði vildi ég það þar sem þetta var jú það ævistarf sem ég hafði valið mér en einnig af þeirri ástæðu að ég bý í litlu þorpi þar sem atvinnumöguleikar fyrir háskólamenntaða eru ekki mjög fjölbreyttir. Þar sem ég vissi að ég myndi kenna áfram vildi ég um leið gera það eins vel og ég gæti og í þeirri viðleitni ákvað ég að fara í framhaldsnám í kennslufræðum tungumála, ég vildi endurvekja starfsgleðina og löngunina til að gera betur. Það má eiginlega segja að ég hafi viljað vakna svo ég gæti vakið nemendur mína. Í náminu kynntist ég þónokkrum nýjungum sem tengjast tungumálanámi en ég lærði líka um starfendarannsóknir. Slíkar rannsóknir krefjast mikillar sjálfsskoðunar og ég komst að ýmsu um mig sem kennara. Sumt var ég bara nokkuð ánægð með en sitthvað sá ég sem mér fannst ekki nógu gott – í rauninni það slæmt að ég hefði líklega gert athugasemd við það ef ég hefði séð það hjá öðrum kennara. Sem dæmi má nefna að ég lokaði mikið á nemendur í samskiptum, gaf sjaldan af sjálfri mér og virkaði stundum eins og kennsluvélmenni þar sem eitthvað var sett á dagskrá og þá var erfitt að hnika því til. Ég er mikið skipulagsviðundur og ef skipulagið var í lagi og allt gekk upp á þann veginn fannst mér hafa gengið vel. Ég forðaðist hugmyndir nemenda og persónulegar umræður, ég var orðin mjög háð kennslubókum en bókin hefur með tíð og tíma orðið einskonar varnarskjöldur fyrir mig, ég hef tilhneigingu til að nota hana sem vegg milli mín og nemenda þegar mér sýnast 10
Description: